My Photo
Name:
Location: Göteborg, Sweden

Saturday, December 31, 2005

Annállinn minn 2005


Nokkrir tangótengdir hápunktar frá 2005 og aðrir óviðráðanlegir atburðir.

Myndin er frá "Rio de la Göte" bryggjutangó við Gautelfur með
Indíafarann uppgerðan á reynslusiglingu um fljótið ... en 2. október sigldi skipið áleiðis til Kína.Posted by Picasa

Annállinn minn 2005-12-31 :

Meðan ég fer á mis við
Pablo Verón sýna listir sínar á tangóhátíðunum í Stockhólmi og Amsterdam, matarboð í Kaupmannahöfn og áramótamilongur beggja megin við Eyrarsundsbrúna … huga ég að því sem ég ekki fór á mis við árið 2005 ...

Man mest tragedíur framan af: Náttúruhamfarirnar í Tælandi, jarðskjálftinn og flóðbylgjan, það var í fyrra. Fréttamyndir viðtöl og umræður, biðin eftir þeim sem komu heim eða komu ekki, er það sem ég man ... 26.12. 2004 hurfu um 225þúsund manns ... 543 frá Svíþjóð. Þann 8. janúar kom svo kom stormurinn Guðrún æðandi um sjálfa Svíþjóð, svipti burt heilu skógarsvæðunum, rafmagnslínum og olli vægast sagt vandræðum meðal fólks sem varð einangrað, og rafmagnslaust í vetrarhörkunum.

Leshringurinn íslenski hér við "Rio de la Göte" hittist snemma í janúar hjá Ingibjörgu Pálsdóttur sem hafði tekið þátt í hjálparstarfi, vegna eftirlifandi Tælandsfara á leið heim.

Tangótengda tragedían var bruninn í Buenos Aires. Flestar milongur þar lokaðar í janúar og fram í febrúar.

Febrúar:
Á kvikmyndahátíð Gautaborgar í febrúarbyrjun sá ég argentínskar myndir og hitti kvikmyndaleikstjórann Maria Victoria Menis, frá Buenos Aires, höfund uppáhaldsmyndarinnar El Cielito - little sky - , Hún kynnti mig fyrir Vicente Oieni ...

Bókmenntafélag Kambódíu og Svíþjóðar fundar í Gautaborg hjá Zabbar Neang og Anita (sjá undir fréttir á heimasíðu félagsins) og við fáum eintök af ljóðabók Önnu Mattson, Det snöar i Kambodja, sem er þriðja bókin gefin út í nafni félagsins. Síðar á stormasömu ári félagsins kemur út bók með ljóðum Edith Södergran túlkuðum á Khmer.

Mars:
Ég byrja að dansa með varúð eftir nærri 6 mánuða hlé fyrst á Tango Österlyckan 4-6 mars og um páskana 24 – 28 mars þegar tangóhátíðin í Málmey var haldin í annað sinn.

Apríl:

Flaug til Munchen; mættum fjögur saman í boði Ralphs Hangleiter, tangóvinir frá Gautaborgarárunum hans helgina 8 – 10 apríl.
Apríllok, vika í Stockhólmi í leikhús, lista- og tangóheimsókn: Fór á frumsýningu hjá Jan Maagaard á Dramaten, Min fru går igen, eftirNoël Coward; hitti Elin og Birgitta Holm; dansaði á Pelé og Bristol; hitti Stina og fór á Kaupmanninn i Feneyjum á Dramaten ... o.s.v.

Maí:

Um hvítasunnuna, 12 - 16 maí, tangóhátíð í Kaupmannahöfn haldin í fyrsta sinn. Í Radiohuset á Frederiksberg. Í maílok var ég DJ á bryggjunni við Röda Sten, horfði á östindiefaran sveima um fljótið .. (sjá mynd) og setti Cornelius á fóninn.

Júní:

Fleiri hátíðir: fjögurra daga tangóhelgi á Österlyckan í byrjun mánuðarins; tango í Lekhuset i Näs sem er höll í sjálfu sér med hljómsveitinni Tangarte, á undurfögru kvöldi rétt fyrir jónsmessu og midsommer; þarnæst heitasti hápunktur tangóársins: TangoCamp i Tylössand á vesturströndinni.

Júlí:

Tveir fínir viðburðir sem ég var svo lánsöm að geta notið:
a) hinn árlegi hlöðutangó hjá Johan Järlehed, þ.e. tveggja daga einkatangópartý á sveitabæ í skerjagarðinum í hlöðu með dansgólfi í öðrum endanum, sauna í hinum og sólskin í túninu ...
b) dagana 28-30 júlí dans- og heimstónlistarhátíðin í Krokstrand norður við Idefjörðinn við landamæri Noregs. Þess á milli heimsóknir: Johanna frá Bryssel og Anna frá Phnom Penh.

Ágúst:
Sólarhrings tangóbrúðkaup varð einn hápunktur sumarsins þegar Ann Elkjär Hansen flautuleikari frá Sunne í Vermlandi og Mats Gustafson barnageðlæknir giftu sig í fallegu Hagakirkjunni á hádegi áttunda ágúst; buðu ættingjum á tangónámskeið eftir víslu og tangóvinum að hjálpa til; síðan í 90manna velskipulagða veislu sem lauk með tónleikum kaffi og gjafaupptöku um hádegið daginn eftir ...

Ég skrópaði á Stockhólmshátíð í ágúst vegna undirbúnings við Íslandsferð, með Carlos Quilici þann 19. ágúst, með röð atburða, fyrst dagskráin í
Norræna Húsinu, með ljóðunum mínum um tangó og bandóneonleik Carlosar í hátt á annan tíma ...Og síðan þann 20. ágúst kvölddagskrá í Iðnó.
21. ágúst, heimsins skemmtilegasta gullnahringsferð með fulltrúum íslenska tangófélagsins og argentínskum gestum í sólskini og kalsa.

September:
þann 1-4 var Tangóhátíðin í Reykjavík elegant að vanda en ég sjálf haltrandi í aðeins of mörgum hlutverkum: blaðamaður, bókaútgefandi; dreifingaraðili og höfundur; nemandi á námskeiðum ...

Fór strax eftir hátíðina norður Kjöl með Boggu systir sem sótti mig og tangóvinina Ralph og Riku. Fór oní í Hveravallarlaugina ljúfu á bikini og með húfu og trefil.

(Í fyrsta sinn sem ég fer alla leið norður og oní byggð en... fór suður Kjöl með Boggu og Adda á Sölvabakka árið 1978.) Við vöknuðum við Húnaflóa úfinn og bláan og lékum okkur í sandinum.

Um miðjan september gerði ég það sem ég hélt að ég gæti ekki: stóð í Melabúðinni og bauð bók til sölu að hætti Elísabetar Jökuldóttur. Létti við að sjá hve margir gamlir kunningjar eru enn að kaupa í matinn (!) og flestir til í tangóbók með matnum!

Fór á bókastefnuna í Gautaborg í lok mánuðarins. Komst að því að breska rithöfundinum Jeanette Winterson er meinilla við blaðamenn og bregst skringilega mótsagnakennt við þegar hún hittir þá í einrúmi; er kurteis og ræðin á blaðamannafundum, en best á obinberum fyrirlestrum.


Hlustaði á skáldið Adonis og leikskáldið Dario Fó.

Sömu daga og Bókastefnan stóð yfir hélt Verdemargengið (Johan og Samira) þriðju Österlyckan hátíð ársins! Svo ég dansaði.

Október-Nómvember:

Tveir tónlistarviðburðir haustsins: a) heimsókn bandoneonleikarans Luis Stazo (f.1930), bláklæddur og hvíthærður, 75 ára snillingur sem leikur svo áreynslulaust að það er engu líkt. Hann var gestur Tangarte og lék með þeim bæði á Skáni og í Gautaborg. Eftir að vinur hans og starfsfélagi José Libertello lést fyrir ári síðað, settist hann að í Berlín og stofnaði tríóið StazoMayor !!! (Sjá meira um Luis og José hjá Todotango).
b) Annar stórviðburður, einleikur
Daniel Turano þann 24 . nóvember á Club continental. Hann á fáa sína líka. Hann bauð uppá tangóspuna á píanó, sama kvöld og Almatrio frá Argentínu tróð upp.

Tveir nýjir tangóstaðir opnuðu og blómstruðu í Gautaborg fyrripart vetrar: Síðdegismilonga á laugardögum við Esperantoplatsen “Las Tardecitas” og ný Practika/tangóæfingakvöld annan hvorn miðvikudag í Folkets hus Fräntorp.

Desember:
1-2 desember: Fór á tvær fínar samkomur um leið og ég heimsótti Stellu og Kristinn í Kaupmannahöfn í byrjun adventu: 1. des. í Jónshúsi á bókmenntakynningu og söng. Ég las upp, Ingu Huld Hákonardóttir sagnfræðingur kynnti bækur og höfunda; Böðvari Guðmundssyni, las úr nýjustu ljóðabókunum, en hann var forsprakki kvöldsins í samvinnu við kórinn Stöku.
Föstudaginn 2. des. var svo “julefrukost” á Tingluti með tangókvintettinum hans Carlosar Quilici frá Rosario, Los Tauras sem gerðu mikla lukku!

Fann Marianne sama dag, nýkomna frá ljóðaupplestri í Chile. Hún hélt því fram að hún hefði litið inn í Argentínu úr fjallaþorpi nálægt landamærunum.

14.-15. desember þáði ég boð í sextugsafmæli fyrrverandi eiginmans míns nr. eitt,
Jan Maagaard Hansen (sjá líka hér) Lúxusveisla fyrir þrjá í sóffunum á Mortens Kro í Álaborg.
Var með ísl. Kórnum í ár á “Julsång i City”. Sungum m.a. fallega maríulagið hennar Báru Gríms: Eg vil lofa eina þá.

Leiksýningar: Sá tvær góðar á offdramaten síðla árs: Sanning og Konsakvens eftir Lars Norén á Boros Stadsteater í boði Mats Personar leiktjaldahönnuðar, frábær leikur! Og sérkennilega sýningu með tónlist eftir Atla Ingólfsson við texta eftir Jon Fosse á Atalante núna í desember. Suzannah, heitir verkið eftir samnefndri eiginkonu Henrik Ibsens.

Af ritstörfum mínum er það að segja að ég hef skrifað í annað hvert númer af Danstidningen árið 2005 (=3 af 6). Ef Norræna húsið er ekki orðið áskrifandi þá er það ekki mér að kenna!

Bloggað síðan í febrúar. Með höppum og glöppum ... sé ekkert um brúðkaup og lítið um Ísland!

Bréfaskipti okkar Elísabetar Jökuls jukust svo um munaði þegar við báðar vorum orðnar sítengdar ... og minnir mest á gamla daga þegar hún skrifaði hugleiðingar frá Heimabæ í Hnífsdal og ég úr Vesturbænum í Reykjavík, fyrir rúmum aldarfjórðungi.


Nú árið er liðið ...





10 Comments:

Blogger kristian guttesen said...

ja hérna, þvílíkt skipulag, hvernig fórstu að þessu, hlýtur að vera á við sjö ára þerapíu að vita hvar og hvenær maður hefur verið hvar og hvenær, - mér sýnist þetta líka vera efni í bók, tangóannálsbók, fólk vill vita hvar fólk er, gæti verið nýjabrum að svoleiðis, ...já, ég ætti kannski að gera þetta, ef ég óttaðist ekki að verða bloggskrímslinu að bráð og leggja allt annað á hilluna ef ég byrjaði að blogga, ...jóhanna barnabarn vildi bara núðlusúpu, já ég er að bíða eftir að umboðsmaður jeremy irons hringi, nú eða kærastinn í new york, rosafín mynd í mogga af hanú og bryndísi, hún er kjólbuxum, hvað er að frétta af nærbuxnamálum þínum, held annars ég skipti um föt, og máli mig aðeins fyrir kvöldið, ... knús, meira knús, ég elska knús einsog barnabarnið segir, ... tangóknús

9:24 PM  
Blogger kristian guttesen said...

eitt enn :) og ;)

9:25 PM  
Blogger kristian guttesen said...

mér finnst þú hafa tangó staðið þig tangó vel á tangó árinu og óska þér tangó á nýja árinu tangó og tangó og ógnat, svo vona ég þú komir heim með nýja bók og tangó seljir þær báðar, tangó og tangó og ég skal kaupa þessa höll handa þér ef þú tangó vilt tangó.

9:28 PM  
Blogger kristian guttesen said...

janúar
hugsaði um einarþór

febrúar
fékk að vita um skólann

marz
sótti um í skólanum

apríl
fór til spánar að heimsækja barnabörnin, spánn er rauður úr lofti

maí
fór til jemen að hitta galdramenn
fékk inngöngu í skólann og af því ég hafði sofið hjá galdramanni í jemen þorði ég að taka skrefið og grét oní tölvupóstinn frá skólanum. jökull útskrifaðist sem stúdent.

júní
íslandsmótið í fótbolta, ég fékk vitrun á fótboltaleik og ekki í fyrsta sinn, hvar var einar þór en ákvað að byrja á nýrri bók um geðveiki, mjög spennandi.

júlí
tókst að finna tóninn, einsog ísl. lækjarniður, hæfir enda geðveiki

ágúst
ég fór til new york og skipti um lás og hitti kærastann minn þar sem ég heyrði svo ekki frá fyrren á nýjársdag, leikrit eftir mig í ameríku. já. jökull fór til ameríku, garpur fór til evrópu, ég upplifði að í tuttugu ár hefðu dyrnar opnast tuttugu sinnum á dag og heyrst orðið mamma mammma mamma

sept
byrjaði í skólanum og fékk geðræn einkenni svo ég varð að einbeita mér að hlusta á það sem var fyrir utan í umhverfinu en ekki eigin heilabúi

kristín tangómær var hjá mér og lá í hinum sófanum.

okt
alltaf að verða skotin í einhverjum í skólanum, plús nokkrar tennur dregnar úr mér, gleymdi næstum einari þór.

nóv
fann þó einn lykilinn enn þegar kemur að einari þór, upplifði hamingjublik í skólanum, og gerðist kommentaskáld á bloggsíðu garps

des
varð næstum því geðveik hefði ég búið að áralangri reynslu á því sviði en skrifaði nokkrar ritgerðir sem breyttu lífi mínu og þá er ég ekki að grínst, uppgötvaði hvernig fræðin geta opnað fjöllin.

allir komu heim, kristjón gaf út bók númer tvö, semsagt braut nr.2 vegginn, barnabörnin tóku yfir heimilishaldið, jólin, nýbók og öll fjölskyldan heima.

áramót
þvílíkir blossar og litadýrð. tvíburasynir mínir föðmuðust, ég dansaði við garp undir berum himni og jökull dansaði við garp, jökull kann auðvitað sporin. kærastinn minn í new york hringdi loks og vill heimsækja mig. aðeins búin að hugsa um einarþór.

9:38 PM  
Blogger kristian guttesen said...

Jökull kann auðvitað sporin en Garpur kann önnu spor, leyndó-sporin, það er nú aldeilsi gaman að kommentera hér, held ég sé umþaðbil að breytast í kommentaskáld, ... svo efnileg með föstum rennilás, og úr mikilli hæð, jæja ég elska annála, ég man í einum annál drekkti kona barni sínu í læk og komu þá þrjú hljóði úr lofti í því er lækurinn litaðist rauður, ...

9:46 PM  
Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

Váááá. ekkert smá kommetaskáld. Liggur við þú sláir
sendibréfaskáldinu í þér við og er þá mikið sagt. Og kominn heill
annáll á augnabliki! það tók mig meira en sólarhring að sauma minn,
rekja upp og ná í liti utan að, finna hlekki og svona.

Gaman að þú skulir opna fjöllin þín með fræðunum, svona akkúrat í tæka
tíð fyrir Ibsenárið.

10:50 PM  
Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

vúps, hér kemur framhaldið:

Ástarþakkir fyrir þennan elegant og örláta annál með fullt af ferðalögum!!!

Tangóknús og blómagarður handa þér, boltanum, börnunum og barnabörnunum, kærustunum og jeremy irons og til hamingju með öll afrekin á árinu!!!

11:00 PM  
Blogger kristian guttesen said...

er ibsen ár, verð ég þá ekki að fara til osló, ég á einmitt kærasta í noregi, nýbúinn að senda mér nýjustu bókina sína, - hlý rigning úti, soldið að hugsa um hvort ég eigi að senda einariþór ímeil. :) :) :)

1:04 AM  
Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

Jú. Ibsen dáinn í hundrað ár og allir til Osló! Reyndar: þú gætir alveg eins farið til Pune í Indlandi - ef þú átt kærasta þar að segja - þar er þrigja daga ibsen/hedda gabler hátíð í næstu viku! Kíktu á Ibsen netið: http://www.ibsen.net/ Og svo á akademíska Ibsenráðstefnu í Osló í 21-27 ágúst. nóg að gera allt árið heppin ef þú kemst á Pétur Gaut og Dóttur dofrans í Þóðleikhúsinu ...

Hvað ertu að skrifa einari þór um veðrið! ;-)
Sól hér og nýr dagur, hrím á trjám svo nú líta þau loks út eins og himneskt jólaskraut!

1:50 PM  
Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

P.S. Ibsenárið opnast formlega í Osló laugardaginn 14.1.2006!
Í Oslo City Hall. Gestasýningar frá Kína og Zanzibar, London og Danmörku, ballettar og óperur og rapp.

2:54 PM  

Post a Comment

<< Home