My Photo
Name:
Location: Göteborg, Sweden

Thursday, October 05, 2006

Eikarlundur á eikargólfi

haha Posted by Picasa Það var óvenju gaman á praktíkunni í Fräntorp í gær. Til húsa í gömlu sætu alþýðuhúsi rétt við borgarmörkin milli Partille og Gautaborgar. Einn Carlosinn óvænt í heimsókn á svæðinu og hamingjan sanna svífur um gólfið ... meira þarf ekki til. Nema englana úr bænum að sjálfsögðu. Á myndinni dansa ég við einn hinna yngstu. Ég ætlaði að búa til auglýsingu á myndavélina mína fyrir praktíkuna - sem er á hverju miðvikudagskvöldi á bæjarins besta eikargólfi - en myndefnin mín svifu of hratt hjá, flest nema sjálft gólfið, svo ég fól einum ráðagóðum apparatið mitt: Sá heitir Jói Fljóti (Johan Hurtig) og árangurinn eftir því. Jóinn sem ég dansa við ber hins vegar eftirnafnið Eikarlundur.

2 Comments:

Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

Já hann jói fljóti tók hana! Ég var hinsvegar soldið sein að setja inn myndtextann ...

3:53 AM  
Blogger Kristinn og Stella said...

Já þetta er mjög fín af þér og englinum sem ég vissi ekki fyrr en nú að héti Jói!
Kveðja, Stella

11:41 AM  

Post a Comment

<< Home