Afmælisdagur
Ég á afmæli í dag! Líklega í kvöld ... mamma fullyrti (alltaf þegar ég spurði) að búið hefði verið að loka símstöðinni þegar ég var alkomin í heiminn - sem gerðist á gamla spítalanum á Blönduósi - og því ekki auðvelt að tilkynna komu mína alla leið heim í Haga.
Svo liðu sextíu ár og einhverntíma hefði ég haldið að eftir sextíu ár væri maður álíka gamall og mér þótti fólk yfir þrítugt vera þegar ég sjálf var átján og harmaði síðan nítján ára afmælisdaginn minn sem færði mig nær hinni skelfilegu elli! Ég sem hafði öll mín krakkaár hlakkað svo til að verða fullorðin. Það er eitthvað bogið við þetta með aldur en ég er himinlifandi yfir að fá að vera með enn í dag. Fá að dansa soldið áfram meðan líkaminn fylgir manni ... hm hver svo sem hann er þessi "manni".
Ég var á fróðlegu rithöfundanámskeiði í sólskininu á Biskops Arnö í síðustu viku, þar sem rætt var um sögur og andsögur eða berättelser och motberättelser og einn fyrirlesarinn var skáld og vísindakonan Hanna Hallgren, nýbúin að gefa út bók með ljóðum og því sem hún kallar blaðaprósa undir titlinum: jaget är människans mest framträdande sinnessjukdom (sjálfið er mest áberandi geðveiki manneskjunnar). Frumlegur og umhugsunarverður titill ...
Bjó þarna á biskubsstólnum í herbergi sem var eins og hallargarður og í næsta herbergi Þórunn Valdemarsdóttir sem heilsaði mér með tveim bláum óskrifuðum bókum að gjöf. Ég hengdi þær strax í sinn hvorn eyrnarsnepilinn og dag eftir dag reyndu sessunautar mínir á námskeiðinu að lesa þær. Það var ljúft að kynnast þórunni sem kann sögur um flest. Systkini mín fullyrða að við séum frænkur. Í móðurætt segir Stella, í föðurætt segir Lárus, málið er í rannsókn.
Ég las upphátt í biskupsstofunni á einni kvöldvökunni, í fyrsta sinn sem síðan fyrir geislameðferð. Mér tókst að beita tækninni sem "logopedinn" á Sahlgrenska hefur verið að kenna mér til að röddin svíki ekki í miðri setningu eða orði ... og einhvernveginn tókst mér að lesa nokkrar ljóðabunur og njóta þess. Fann ekkert til á eftir. Ótrúlegt.
Fékk í gær aðra gjöf sem vex: Tvö tré í Afríku!
Í kvöld verð ég ekki heima
held ekki veislu
þarf að dansa
Elísabet vinkona, illgresisbarn, mörgumsinnum amma, stórskáld og fjallablóm og listaháskólanemi þar til á laugardaginn kemur, bloggaði meiriháttar skáldlega afmælisræðu til mín í dag. Takk Elísabet.
9 Comments:
Hjartanlega til hamingju með afmælið...Ísland skelfur í dag...
Þetta með móðurætt eða föðurætt fer auðvitað eftir því hvaðan maður horfir, en mínar heimildir segja að móðir þín (og mín og Lárusar)sé skyld föður Þórunnar.
Kær kveðja
Stella
Takk kærlega fyrir kveðjurnar :-)
Frétti um skjálftann á Oceanen í kvöld, en las fyrst um hann núna þegar ég kom heim.
Hjá mér var kvöldið skjálftalítið, ég fékk minn langþráða afmælisvals, Riku sá um stuðið sem DJ og kom með fangið fullt af blómum ...
Aftur,
til hamingju með afmælið,
illgresisbarnið
TAKK blóm, enn og aftur takk!
Hvað er að frétta af blússunni ... og já því öllu saman.
hvað eru ANDSÖGUR?
ertu horfin, það er meiriháttar vesen að kommentera, geturðu ekki látið taka út þetta stafarugl.
Já ég hverf stundum langtímum saman og svo þegar ég birtist sé ég röð af kommentum ... heyrðu ég held að ef þú ert logguð inn á þínu eigin bloggi þá sleppirðu við allt "stafarugl", og þá komi kannskisjálfkrafa mynd af bloggaranum Ellu Stínu!
blússan já, ég var voða velheppnuð í blússunni: sem var toppur reimaður í bakið en ekki alla leið haha, og vinsælt að góna á framhliðina á mér ... sumir ráku nefið alveg í magan á mér við að stafa sig fram út litríkri áleturninni svo I was very much being looked at!
og svo dansaði ég afmælisvalsinn : )
flóknara að svara spurningunni um andsögur/gagnsögur/motberättelser ... það var rætt í þrjá daga og hver og einn höfundur með sína hugmynd um skilgreininug ... svo bíddu aaaðeins
Post a Comment
<< Home