1.juní
Í dag vaknaði ég við flautuna hennar Ann Elkjär, á Image, nýja disknum hennar og gítarinstans Martin Fogel þar sem þau leika allt frá Eguéne Bozza og Ravel til Erik Satie ... Ann var hér í gærkvöldi, og Mats maðurinn hennar geðlæknirinn Gustafsson (+ tangófélagi minn frá fyrri árum : )) og Olga dóttir þeirra 11 mánuða kom líka, í matarboðið mitt við kirsuberjaborðið sem teigði úr sér og stóð á miðju gólfi. Áki nokkur tangóari og sálfræðingur, mætti einnig Mats Persson kom frá Stockhólmi, Jan Maagaard frá Kaupmannahöfn og Ann Mattson og kærastan hennar komu frjá Majorna ...
Jan datt í hug að búa til rabarbarasultu úr rabarbara sem varð á vegi okkar og þannig minnti lambasteikin eiginlega á íslenska lambasteik því mamma var vön að bera fram rabarbarasultu með steikinni. Hún var fædd fyrsta júní 1920, fyrir vestan ...
Við Jan ( fyrrverandi eiginmaður minn nr. eitt : )) fórum í langa síðdegisgöngu í dag - á fæðingardegi mömmu - í steikjandi sól út í Jonsered, med viðkomu á Jonsered Herragarði; gengum meðfram ánni alla leið heim.

1 Comments:
1. júní sl hefur verið ljúfur hjá þér ekki síður en mér en ég var að hjálpa Jónu Finndísi og Hjalta Steini að flytja í nýkeypt hús á Akureyri þann dag. Sjáumst. Þín Bogga.
Post a Comment
<< Home