Fór í leikhús og sá ekki sýninguna sem ég fór á
Tvær frumsýningar og milonga við fiskihöfnina.
Þvílík lúxushelgi, eftir látlaust kvef og hálsbólgu alla vikuna!
Ég skellti mér í bæinn á föstudaginn, með frumsýningarmiðann uppá vasann, á verk eftir Joan Didion í sænskum búningi: Ett år av magisk tänkande, með Agneta Ekmanner. Eintal um eigin viðbrögð við því að verða ekkja fyrirvaralaust og eiga veika einkadóttur. Ár af göldróttri sorgarvinnu, með stjörnu frá Stokhólmi á á Stadsteatern. Agneta er þekktur perfeksjónisti.
Lipurt, fínt, perfekt, hugsaði ég þegar mér tókst að teygja hálsinn þannig að ég bæði sæi og heyrði leikkonuna framhjá höfði sem var einkar óheppilega staðsett í röðinni fyrir framan mig.
Og ca tíu mínútur inn í verkinu kom loks verulega löng og ótrúlega mögnuð kúnstpása. Fannst mér. Svo komu fleiri, og eitthvað var að. Afsakið ég verð að taka mér hlé hér, sagði leikkonan og var ekki að leika. Hún var studd út af sviðinu og listrænn stjórnandi leikhússins birtist skömmu seinna og bað fólk að spjalla saman. Leikkonunni var óglatt og beðið var eftir hvort myndi treysta sér til að halda áfram.
Dramatískt atriði og það réttt oní lýsingu á dauðsfalli og áfalli sem eintalið hefst með.
Man ekki eftir álíka dramatískri bið í leikhúsi síðan fangarnir frá Kumla komu til að sýna Beðið eftir Godo, einmitt á þessu sama sviði. Enginn kom þá á sviðið lengi vel. Loks kom leikstjórinn upp á sviðið og sagði leikarana hafa flúið.
Hann hélt þá eintal samið á staðnum um samvinnuna og ferðalagið. Skrifaði seinna bók um það og flóttann líka og setti upp verk Bekkets í öðru fangelsi.
En Agnenta Ekmanner flúði ekki, hún stóð aftur á sviðinu ca stundarfjórðungi síðar og bakkaði smá í textanum. Ég saknaði fyrstu kúnstpásunnar. Og fékk sjálf hóstakast. Var að hugsa um að flýja en var króuð inn í miðri sætaröð. Hætti að teygja mig til að sjá. Slappaði af og sofnaði, milli þess sem ég var að kafna við að kæfa hóstann. Ég sem sagt hvorki fór né var.
Þegar ég las gagnrýnina í gautaborgarpóstinum (gp.se) í dag fékk ég staðfestingu á því að leikkonan var dramatískari en textinn.
*
Laugardagurinn reyndist sólskinsdagur sem endaði á praktiku og milongu niður við Fiskihöfnina við Gautelfur. Daniel Carlsson íslandfari var í heimsókn og kvaðst ánægður með Ísland á Vetrarhátíð. Og hann sá hana systur mína. (Gleymdi að spyrja hvort hann sá eitthvað af landinu utan þjóðleikhússkjallarans:)).
I dag er líka sólskinsdagur og ég er á leið í Óperuna á eftir, að sjá tvo nýa balletta, sem voru frumsýndir í gær. Herzschmerz eftir norska danshöfundinn Jo Stømgren, og Black Biist eftir begíska Wim Vandekeybus. Báðir samdir fyrir dansflokk Gautaborgaróperunnar.

7 Comments:
Hæ! Ég var eimitt spurð að því í gær hvort þú værir alveg hætt að blogga...það er gott að sjá að þú ert ekki alveg hætt. Hér rignir og snjóar á víxl, spennandi að vita hvernig veðrið verður á morgun.
kveðja, Stella
haha og svo vildi svo til að ég spurði sjálfa mig að því sama og svarið var nei, ég hef bara verið svona treg og kom ekki einu sinni með rapport frá kvikmyndahátíðinni.
Gaman að heyra frá þér og takk fyrir að kommentera.
góða nótt
ég hef lent í svona, þá hætti bara einn leikarinn, þjóðleikhússtóri var á sýningunni og bað alla vera rólega, en leikarinn treysti sér ekki á svið, mér fannst þetta allt mér að kenna en nú er fá mér djús og fara heim að skrifa,
skemmtilegt blogg gogg hjá þér,
elísabet
aha, þér að kenna!
annað hvort hefurðu þá samið leikritið áður en það átti að leikast eða eftir á. hm. that is the ?
takk fyrir að koma í heimsókn blómakrútt
já, ég er guð, allt er mér að kenna, eða þakka, ég tók við af guði þegar ég sá hvernig honum leið,
hann er núna að reyna tosa í faldinn....
ísland er ennþá til,
ellastína þreytta úr ferðalagi,
Gott að sjá að þú ert ekki hætt að blogga. Ég er heldur ekki alveg hætt að líta eftir því.
Vonandi var allt í lagi með leikkonuna þegar hún kom aftur á sviðið?
bestu kveðjur að norðan. Þín Bogga
já maður kíkir hér dag eftir dag, een stína fína bara í spænskunni, ellastína
ps. gott gengi.
Post a Comment
<< Home