Engin bóla
Get bara ekki orðabundist, því mér blöskra "brandararnir" sem ég heyri, þótt ég búi ekki í bretlandi heldur í norðrinu sjálfu.
"Íslandi væri best borgið með því að verða brot af Rússlandi" var mér tilkynnt á mánudaginn var, sí svona beint upp í mitt opna geð og ég varð svo reið og döpur í senn að það lá við að ég þagnaði.
*
Í gær var ég í kontról hjá Dr. Nyman á krabbameinsdeildinni. Hann var mjög ánægður með mig, já gott ef ekki montinn af velheppaðri lækningu og engin ný og grunsamleg bóla í augsýn! Svo spurði hann hvort það væri satt að allir brunuðu um í dýrindis fjallajeppum á Íslandi.
Fínt þegar fólk spyr. Þá er bara að svara. Og ég hélt áfram að svara svo ég komst varla út úr dyrunum. Varð sjálf hálf undrandi hvað mér varð mikið niðri fyrir við að endursegja Víðsjá frá tveim síðastliðnum föstudögum, með íslensku gáfufólki úr menningargeirum ... og svo heyrði ég mig fullyrða að bara c.a. önnur hver manneskja hefði nú verið á jeppa ...
*
Eitt og annað sem ég heyri að heiman þessar vikurnar minnir mig óneitanlega á viðbrögð fólks í Argentínu 2001 - 2002. Þá fór fólk í Buenos Aires almennt að snúa bökum saman á nýjan máta og ábyrgðarfullan. þ.e. í allri óvissunni, þegar pesóinn varð bara einn þriðji af sjálfum sér (og bandaríkjadollaranum) á tveim þrem mánuðum, fólk hafði engan aðgang að sínu sparifé, launagreiðslur voru ekki lengur sjálfsagðar og þar fram eftir götunum í þessu annars ríka landi.